Dafi Kühne — Poster Cult!
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Kort
mið 30. sep 2026 17:30
Bústaðu viðburðinn!Félag íslenskra teiknara og Listaháskóli Íslands bjóða á opinn fyrirlestur grafíska hönnuðarins Dafi Kühne, miðvikudaginn 30. september í Bíó Paradís. Fyrirlesturinn hefst kl. 17:30.
Dafi Kühne (*1982) er grafískur hönnuður og prentari. Hann lærði grafíska hönnun við Listaháskólann í Zürich (ZHdK) og lauk rannsóknarmiðuðu meistaranámi í leturhönnun (Typeface Design) við University of Reading í Bretlandi. Dafi hefur unnið við eigin hönnunarstofu, babyinktwice.ch frá árinu 2009. Dafi vinnur jafnt með analog og stafrænar aðferðir við gerð plakata sinna sem hann vinnur fyrir menningartengd verkefni og auglýsingar. Hann vinnur eftir einni meginreglu: „Ekkert stafrænt PDF-skjal fer frá vinnustofunni sem lokaafurð.“ Öll veggspjöld Dafi Kühne eru prentuð með letterpress prentaðferðum.
Fyrsta bók Dafi Kühne, «True Print», kom út frá Lars Müller Publishers árið 2016 og bókin «Poster Cult!», kom út árið 2024. Hann er stundakennari við háskóla í Sviss, Evrópu og Bandaríkjunum en Dafi kennir einnig eigin vinnusmiðju: Typographic Summer Program (www.typographic-printing-program.com) í Sviss, alþjóðlegu tveggja vikna námskeiði þar sem nemendur og fagfólk kynnast nýjum aðferðum í leturfræði.
Frá árinu 2018 hefur Kühne gefið út vefmyndbönd undir heitinu „The Dafi Kühne Printing Show™“. Árið 2021 hlaut serían bæði Swiss Design Award og Tokyo TDC-verðlaun. Plaköt eftir Kühne eru varðveitt í opinberum söfnum í Sviss, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Verk hans hafa hlotið alþjóðleg verðlaun og verið sýnd á sýningum víða um heim. Kühne er meðlimur í Alliance Graphique Internationale (AGI).