Dægurflugur í hádeginu I Í minningu Gunnars Þórðarsonar

Dægurflugur í hádeginu I Í minningu Gunnars Þórðarsonar

Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort

fös 16. okt 2026 12:15

Bústaðu viðburðinn!

16. október kl. 12:15 - 13:00 á Borgarbókasafninu Gerðubergi
17. október kl. 13:15 - 14:00 á Borgarbókasafninu Spönginni
Að þessu sinni eru Dægurflugur tileinkaðar tónlistarmanninum Gunnari Þórðarsyni en hann lést í júlí á þessu ári. Gunnar hefur samið margar af stærstu dægurlagaperlum okkar tíma og eftir hann liggja yfir fimm hundruð lög sem þjóðin hefur sungið, elskað og dáð. Gunnar var einstaklega fjölhæfur tónlistarmaður. Hann kom fram sem söngvari, gítarleikari og var auk þess vinsæll upptökustjóri!
Á tónleikunum mun Ragnheiður Gröndal syngja og spila á píanó og með henni leika Guðmundur Pétursson á gítar og Leifur Gunnarsson á kontrabassa en hann er jafnframt listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar.
Aðgangur ókeypis.
Nánari upplýsingar:
Leifur Gunnarsson
leifurgunnarsson@gmail.com
Hólmfríður Ólafsdóttir, Verkefnastjóri
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is