Kvöldpassi – Harpa

Kvöldpassi – Harpa

Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

mið. 26.08.2026 19:00

Jazzhátíð Reykjavíkur fer fram dagana 25. – 30. ágúst 2026.
Boðið verður upp á glæsilega sex daga tónleikadagskrá þar sem jazz og spunatónlist verður í forgrunni og frábært listafólk frá Evrópu og Íslandi kemur fram.
Kvöldpassi er í boði öll kvöld hátíðarinnar og veitir aðgang að öllum tónleikum viðkomandi kvölds. Ekki er selt inn á staka tónleika.
Kvöldpassi kostar 8.990 kr. en við bjóðum upp á afsláttarverð, 6.990 kr., fyrir þau sem kjósa lægra verð og sérstakt stuðningsverð fyrir velunnara hátíðarinnar, 9.990 kr.
Miðvikudagurinn 26. ágúst | Harpa, Norðurljós
19:00 – Ingi Bjarni Quartet (IS/SWE)
20:00 – Kosmonauci (PL)
21:00 – Havanablús Tómasar R. | Los Bomboneros (IS)

Flytjendur

  • Jazzhátíð Reykjavíkur
    Jazzhátíð Reykjavíkur

    Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið haldin árlega allt frá árinu 1990 og er næst elsta tónlistarhátíð landsins. Hátíðin er vettvangur alls þess helsta sem gerist á sviði innlendrar jazztónlistar og er hápunktur jazzlífsins á Íslandi og árleg uppskeruhátíð innlendra jazztónlistarmanna.

    Meginmarkmið Jazzhátíðar Reykjavíkur er að styðja við og kynna jazztónlist og bjóða tónlistarmönnum og jazzunnendum upp á framúrskarandi vettvang og umgjörð þar sem þeir geta flutt og notið áheyrnar þess besta sem gerist í innlendri og erlendri jazztónlist. Jafnframt leggur Jazzhátíðin innlendum jazztónlistarmönnum lið með því að koma þeim á framfæri við hátíðir í öðrum löndum í gegnum samstarfsvettvang hagsmunaaðila á evrópsku jazzsenunni, European Jazz Network, en Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið meðlimur samtakanna undanfarin ár.

  • Kosmonauci
    Kosmonauci

    Polskt vrål! Vi snackar vibrafon och hiphop-beats i det tjackigaste tempot någonsin.