Jazz í Djúpinu // Agnes Sólmunds

Jazz í Djúpinu // Agnes Sólmunds

Djúpið, Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík Kort

fim. 23.07.2026 20:30

ÍSLENSKA

Söngkonan Agnes Sólmundsdóttir flytur huggulega jazz og sálartóna ásamt hljómsveit. Á dagskrá verða bæði gamlir og góðir jazz-standardar í bland við soul og blues ásamt nýrri tónlist úr smiðju Agnesar.

Hljómsveitina skipa Jökull Jónsson á píanó, Stefanía Bergljót Stefánsdóttir á rafbassa og Þorsteinn Jónsson á trommur.

- -

Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 sumarið 2026. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 4.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH, Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.

Flytjendur