Verið velkomin í kvöldgöngu í miðbæ Reykjavíkur á slóðir Halldórs Laxness og verka hans.
Halldór Guðmundsson, bókmenntafræðingur og höfundur ævisögu Halldórs Laxness, leiðir göngufólk um slóðir ævi og verka Halldórs Laxness í miðbæ Reykjavíkur. Sagt verður frá fæðingarstað Halldórs og nokkrum stöðum í miðbænum þar sem hann bjó ungur eða var tíður gestur.
Halldór skrifaði ekki margar Reykjavíkursögur, en komið verður við á söguslóðum Brekkukotsannáls og Atómstöðvarinnar, meðal annars. Varpað verður ljósi á tengsl Halldórs við höfuðstaðinn, þar sem bjuggu ekki nema tæplega sjö þúsund manns, þegar hann fæddist.
Gangan hefst kl. 20:00 við Laugaveg 32 og fer fram á íslensku. Gangan tekur um 1 og ½ klukkustund.
Kvöldgangan er hluti af viðburðarröðinni Kvöldgöngur sem er samstarfsverkefni Borgarbókasafns, Borgarsögusafns og Listasafns Reykjavíkur. Kvöldgöngurnar fara fram á fimmtudögum yfir sumarmánuðina og eru með öllu gjaldfrjálsar. Öll eru hjartanlega velkomin. Heildardagskrá kvöldganga 2026 má finna hér:
https://borgarbokasafn.is/kvoldgongur
Kvöldgöngur | Frá steinbænum í Unuhús - Reykjavík og Halldór Laxness
Laugavegur 32 (upphaf kvöldgöngu), Laugavegur 32, 101 Reykjavík Kort
fim. 23.07.2026 20:00
Flytjendur
-
Halldór Guðmundsson
Rithöfundur
-
Kvöldgöngur
Sumarkvöldgöngurnar 2025 hefjast 19. júní.