Kvöldganga | Duchy, cienie i tajemnice - Spacer literacki w języku polskim / Bókmenntaganga á pólsku

Kvöldganga | Duchy, cienie i tajemnice - Spacer literacki w języku polskim / Bókmenntaganga á pólsku

Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort

fim. 09.07.2026 20:00

Draugar, skuggar og leyndarmál - bókmenntaganga á pólsku
Verið velkomin í bókmenntagöngu á pólsku!
Hvað hreyfist í skuggunum á götum Reykjavíkur? Hvað leynist í görðum, tjörnum og þröngum skúmaskotum? Um hvað hvísla látin skáld og rithöfundar sem grafnir eru í Hólavallagarði? Með bók í hönd leiðir rithöfundurinn og skáldið Ewa Marcinek bókmenntagöngu á pólsku um miðbæ Reykjavíkur.
Kvöldgangan hefst við Borgarbókasafnið í Grófinni, Tryggvagötu 15 og fer fram á pólsku. Gangan hefst kl. 20:00 og stendur yfir til kl. 21:30.
Kvöldgangan er hluti af viðburðarröðinni Kvöldgöngur sem er samstarfsverkefni Borgarbókasafns, Borgarsögusafns og Listasafns Reykjavíkur. Kvöldgöngurnar fara fram á fimmtudögum yfir sumarmánuðina og eru með öllu gjaldfrjálsar. Öll eru hjartanlega velkomin. Heildardagskrá kvöldganga 2026 má finna hér: https://borgarbokasafn.is/kvoldgongur

Flytjendur

  • Kvöldgöngur
    Kvöldgöngur

    Sumarkvöldgöngurnar 2025 hefjast 19. júní.

  • Ewa Marcinek

    Polish-Icelandic writer and cultural organiser, co-founder of several literary and artistic initiatives.