27 - Ópera
Borgarleikhúsið | Litli Salur, Listabraut 3, 103 Reykjavík Kort
fim. 05.11.2026 20:00
Í hjarta Parísar verður lítil stofa að suðupotti nýrrar listar. Óperan 27 segir hrífandi ástarsögu Gertrude Stein og Alice B. Toklas, tveggja kvenna sem sköpuðu heimili, samfélag og skjól fyrir helstu listamenn tuttugustu aldar. Þar hittast Picasso, Matisse og Hemingway áður en heimurinn þekkir nöfn þeirra – og innan veggjanna takast á ástríða, metnaður, vinátta og hugmyndir sem eiga eftir að breyta listasögunni. Ricky Ian Gordon og Royce Vavrek flétta saman tónlist, húmor og hjartnæma sögusýn í aðgengilegri samtímaóperu um ástina sem lifir af stríð, átök og tímans þunga nið.
Uppsetningin er framleiðsla nýs íslensks óperukompanís sem heitir hinÓperan, en markmið þess er að auka sýnileika hinsegin fólks á óperusviðinu. Sjá nánar á www.hinoperan.isÓperan 27 er styrkt af Sviðslistasjóði.
Athugið að sýningin er á ensku.
Flytjendur:
Íris Björk Gunnarsdóttir er Gertrude Stein
Herdís Anna Jónasdóttir er Alice B. Toklas
Eggert Reginn Kjartansson er Pablo Picasso o.fl.
Áslákur Ingvarsson er Leo Stein o.fl.
Bjarni Thor Kristinsson er Ernest Hemingway o.fl.
Listrænir stjórnendur:
Leikstjóri: Bjarni Snæbjörnsson
Tónlistarstjóri: Matthildur Anna Gísladóttir
Leikmynda-og ljósahönnun: Friðþjófur Þorsteinsson
Búningahönnuður: Andri Unnarsson
Sviðshreyfingar: Cameron Corbett
Leikgervi: Ray Milano
Flytjendur
-
Íris Björk GunnarsdóttirÍris Björk Gunnarsdóttir, sópran, er leikárið 2023-24 með ráðningu við Þjóðaróperu Noregs. Hún hóf söngnám 21 árs við Söngskóla Sigurðar Demetz og er með bachelorgráðu í klassískum söng frá Listaháskóla Íslands. Hún nam eitt ár við Óperuháskólann í Stokkhólmi og lauk mastersgráðu við Óperuháskólann í Osló vorið 2023. Íris Björk sigraði söngkeppnina Vox Domini árið 2018 og hlaut titilinn ,,Rödd ársins”. Í lok árs 2020 bar Íris Björk sigur úr býtum í árlegri keppni Ungra einleikara og kom því fram ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands á samnefndum tónleikum í Eldborg í maí 2021.
Hlutverk sem Íris Björk tókst á við á námsferli sínum eru meðal annars Governess í Turn of the Screw, Nedda í Pagliacci, Lauretta og Nella í Gianni Schicchi, Alice í Falstaff, Mimì í La Bohéme, Sandrina í La finta giardiniera og Gertrude Stein í 27. Hún söng Svörtu drottninguna í heimsfrumsýningu á Lísu í Undralandi eftir John Speight í Reykjavík 2021. Á leikárinu 2023-24 er Íris Björk ráðin við Þjóðaróperu Noregs og mun syngja í uppfærslum hússins á La traviata, Orfée aux enfer, Madama Butterfly og Dialogues des Carmélites. Hún kemur reglulega fram á tónleikum bæði á Íslandi og Noregi. -
Herdís Anna JónasdóttirIcelandic soprano, Munich/Reykjavík
-
Eggert Reginn Kjartansson
Einsöngvari, leikur Basillio / Don Curzio.
-
Áslákur Ingvarsson
Flytjandi í hlutverki Marcello.
-
Bjarni Thor Kristinsson
leikstjóri
-
Bjarni Snæbjörnsson
Ástríðufullur söng-leikari
-
Friðþjófur Þorsteinsson
Ljósahönnun
-
Cameron Corbett
Dans- og sviðshreyfingar
-
Ray MilanoLeikgervi