ÞAU í Heydal
Heydalur, Mjóafirði, Súðavík Kort
mið. 22.07.2026 20:30
ÞAU spila í sumar
Í HEYDAL HJÁ STELLU
🗓 Miðvikudagskvöldið 22. júlí
🕘 Tónleikar hefjast kl. 20:30
🎟️ Frjáls framlög (posi á staðnum)
ÞAU eru söng- og leikkonan Rakel Björk og gítar- og trommuleikarinn Gaddi.
Tær rödd Rakelar mætir grófum gítarleik Gadda í frumsamdri tónlist við íslensk ljóð, þar sem áhrif úr rokki, indí, jazzi og poppi fléttast saman. Með looperum og fjölbreyttum effektum á raddir og hljóðfæri skapa ÞAU lifandi og óvæntan hljóðheim á sviði, þar sem aðeins tveir tónlistarmenn fylla salinn af tónlist.
ÞAU hafa sent frá sér plöturnar ÞAU taka Vestfirði og ÞAU taka Norðurland, sem hafa hlotið góðar viðtökur, og vinna ÞAU nú að þriðju plötunni, ÞAU taka Suðurland.
ÞAU komu nýverið fram á HEIMA í Hafnarfirði og halda nú ferðalaginu áfram um landið! Erfiðasta verkefnið verður líklegast að koma öllu fyrir í bílnum. Amman og afinn fylgja okkur á ferðalaginu og passa Glóeyju litlu á meðan foreldrarnir rokka. Gott plan! Eitt er víst að þetta verður ábyggilega stuð, eins og síðustu fimm sumur! 😋
☀️☀️☀️☀️☀️
ÞAU spila í sumar:
22. apríl (mið) - ÞAU á HEIMA í Hafnarfirði
5. júní (fös) - ÞAU og Valborg Ólafs í Midgard
(Miðar: https://shorturl.at/A8McK)
22. júlí (mið) - ÞAU í Heydal (frjáls framlög)
25. júlí (lau) - ÞAU og Bríet Vagna í Kómedíuleikhúsinu í Haukadal (miðasala ekki hafin)
26. júlí (sun) - ÞAU á Hesteyri (miðasala ekki hafin)
28. júlí (þrið) - ÞAU í Dalbæ í Unaðsdal - (frjáls framlög)
30. júlí (fim) - ÞAU í Síldarverksmiðjunni á Djúpavík - (frjáls framlög)
6. ágúst (fim) - ÞAU á Gísli, Eiríkur og Helgi á Dalvík (frjáls framlög)
8. ágúst (lau) - ÞAU á LEYNI á Akureyri (miðasala ekki hafin)
14. ágúst (fös) - ÞAU á ÆGIR 220 (miðasala ekki hafin)
🌻🌻🌻🌻🌻
FOLLOW ÞAU AND LISTEN ON SPOTIFY
https://open.spotify.com/artist/6Ct50lb1SYNbNs1JEPDGcJ?si=z1XZnELcSo-3lH1ZTgkc1w
EPK/Website: https://www.rakelbjork.com/epk
Facebook: https://www.facebook.com/thaucompany
Instagram: https://www.instagram.com/thau.company/
🌻🌻🌻🌻🌻
____________________________
Flytjendur
-
ÞAUHljómsveitin Þau er samstarfsverkefni listafólksins og hjónakornanna Rakelar Bjarkar Björnsdóttur og Garðars Borgþórssonar. Tvíeykið hefur þegar gefið út tvær plötur, ,,Þau taka Vestfirði” og ,,Þau taka Norðurland” og haldið fjölda tónleika. Um er að ræða tónlist sem samin er við ljóð skálda annars vegar frá Vestfjörðum og hins vegar frá Norðurlandi.