Brú til Bata - Styrktarkvöld til stuðnings Alanó klúbbnum og 12 Sporahúsinu

Brú til Bata - Styrktarkvöld til stuðnings Alanó klúbbnum og 12 Sporahúsinu

Bæjarbíó, Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður Kort

sun. 13.09.2026 20:00

Styrktarkvöld

Sunnudagurinn 13. september verður Bæjarbíó fyllt af tónlist, samveru og skýrum tilgangi þegar styrktarkvöldið Brú til Bata fer fram til stuðnings Alanó klúbbnum og 12 Sporahúsinu.

Allur ágóði rennur til reksturs og uppbyggingar Alanó klúbbsins og 12 Sporahússins.

Sigmar Vilhjálmsson, sem flestir þekkja sem Simma Vill, stýrir kvöldinu og heiðursgestur verður Ragnar Þór Ingólfsson, ráðherra félagsmála og húsnæðismála.

Framkoma:

Brynja Rán

Alaska1867

Flóni

Beggi Sóldögg

Alanó klúbburinn er líknarfélag sem rekur 12 Sporahúsið, húsnæði með fundaaðstöðu fyrir 12 spora samtök ásamt félagsmiðstöð. Í húsinu fer fram fjölbreytt 12 spora starf og þar hefur byggst upp mikilvægt rými fyrir fundi, tengsl og daglega nærveru.

Starfið er að stórum hluta borið uppi af sjálfboðaliðum og húsið gegnir mikilvægu hlutverki fyrir ólík 12 spora samtök, fólk í bata og aðstandendur.

Brú til Bata er kvöld fyrir húsið, starfið og samfélagið sem hefur byggst upp í kringum það.

Flytjendur

  • Brynja Rán
    Brynja Rán

    Icelandic singer and songwriter. New single: Still Stuck Waiting... out on all platforms!

  • Alaska1867
    Alaska1867

    Raftónlistarfólk

  • FLÓNI
    FLÓNI

    Flóni var að gefa út magnaða plötu sem ómar í allra eyrum þessa dagana.

  • Alanó klúbburinn
    Alanó klúbburinn

    Líknarfélag sem rekur húsnæði til útleigu fyrir 12 spora samtök á Íslandi.