Við byrjum október á því að hafa það notalegt og föndra okkar eigin bókamerki. Allur efniviður verður á staðnum, litað kartong, skrautpennar, skemmtilegir gatarar, borðar og margt fleira.
Fyrir hverja er smiðjan?
Smiðjan hentar fullorðnum og eldri börnum. Yngri börn eru velkomin en þurfa að vera í fylgd fullorðins sem getur veitt aðstoð.
Við hvetjum fullorðna til að mæta og leyfa sköpunargleðinni að njóta sín í notalegri og skemmtilegri stund. Aðgangur er ókeypis og skráning er óþörf.
Tilbúningur er viðburðarröð sem fer fram á:
Borgarbókasafninu Spöng fyrsta miðvikudag hvers mánaðar.
Borgarbókasafninu Árbæ annan þriðjudag hvers mánaðar.
Borgarbókasafninu Úlfarsárdal fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.
Nánari upplýsingar veitir:
Tinna Birna Björnsdóttir | Viðburðir
tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is
Bókamerkjagerð
Borgarbókasafnið | Menningarhús Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 122, 113 Reykjavík Kort
fim 1. okt 2026 15:30