Bókakvöld með Bergi Ebba
Salka, Hverfisgata 89, 101 Reykjavík Kort
mið 14. okt 2026 20:00
Bústaðu viðburðinn!BÓKAKVÖLD MEÐ BERGI EBBA
Við höldum fyrsta bókakvöld vetrarins í nýju og glæsilegu viðburðarými á neðri hæð bókabúðar Sölku miðvikudaginn 14. október kl. 20. Þá kemur Bergur Ebbi til okkar en hann gaf nýverið út bók sem slegið hefur í gegn og nefnist Öld ímyndunaraflsins.
Útvarpsmaðurinn góðkunni, Freyr Eyjólfsson, mun leiða samtalið við Berg Ebba og það er ljóst að fróðlegt kvöld er í vændum. Bókin er að sjálfsögðu til sölu á staðnum og hiklaust hægt að fá hana áritaða af höfundi. Bókabarinn er opinn að venju og hægt er að væta kverkarnar á staðnum.
Athugið að ekki er lyfta á neðri hæðina en hægt er að hafa samband við okkur á salka@salka.is og fá aðgengi beint inn á neðri hæðina. Aðgangur er ókeypis.
Við hlökkum til að sjá ykkur!