Bókakonfekt – kynning á bókmenntaarfinum
Kvikan menningarhús, Hafnargata 12a, 240 Grindavík Kort
þri 17. nóv 2026 20:00
Bústaðu viðburðinn!Bókasafn Grindavíkur býður bæjarbúum og nærsveitungum á ljúfa og hátíðlega bókmenntastund í Kvikunni þriðjudagskvöldið 17. nóvember kl. 20.00.
Á Bókakonfekti fögnum við íslenskum bókmenntaarfi og nýrri skáldsköpun í notalegri stemningu í skammdeginu.
Að þessu sinni munu rithöfundarnir Steinunn Sigurðardóttir og Gerður Kristný sækja Grindvíkinga heima.
Steinunn les úr nýútkominni skáldsögu sinni, Veislu þrjú, þar sem lesendur fá að heyra meira af LínLín sem margir kynntust í skáldsögunni Ból sem hlaut íslenski bókmenntaverðlaunin árið 2023. Í sögunni takast lífsþorsti, tilhlökkun og óvæntir atburðir á af einstöku næmi, kímni og fegurð.
Gerður Kristný les upp úr nýrri skáldsögu sinni, Míkadó, sem fangar uppvöxt og fjölskyldulíf í Reykjavík níunda áratugarins af hnífskörpu innsæi og kímni. Þar segir frá ellefu ára stelpu og fjölskyldu hennar sem reynir hvað hún getur að liðast ekki í sundur – líkt og í míkadó-spili.
Þá ætla Grindavíkurdætur að flytja nokkur vel valin lög sem ylja gestum um hjartarætur og Neskja konfektgerð býður upp á dýrindis konfektsmakk í tilefni kvöldsins.
Viðburðurinn er hluti af verkefninu „Kynning á bókmenntaarfinum“, sem er samstarfsverkefni almenningsbókasafna á Suðurnesjum og styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.
Hlökkum til að eiga með ykkur ógleymanlegt bókakvöld í Kvikunni.