Bókakaffi | Jónína Leósdóttir og Benný Sif Ísleifsdóttir

Bókakaffi | Jónína Leósdóttir og Benný Sif Ísleifsdóttir

Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ, Hraunbær 119, 110 Reykjavík Kort

mán 19. okt 2026 16:30

Bústaðu viðburðinn!

Rithöfundarnir Benný Sif Ísleifsdóttir og Jónína Leósdóttir mæta í bókakaffi í Borgarbókasafninu Árbæ og lesa úr og segja frá nýjustu bókunum sínum.
Jónína Leósdóttir er margreyndur höfundur og hefur skrifað á þriðja tug bóka - þar á meðal vinsælu glæpasagnaseríunar um Eddu. Það er stutt í hið spaugilega í verkum Jónínu og það á einnig við um glæpasögurnar hennar. Í bókakaffinu mun Jónína segja frá nýjustu bók sinni Algjör Perla.
Benný Sif Ísleifsdóttir hefur skrifað fyrir bæði börn og fullorðna og hlotið lof lesenda jafnt sem gagnrýnenda fyrir verk sín. Skáldsögur Bennýjar eru örlagasögur fólks úr íslenskum veruleika og er nýjasta bókin engin undantekning. Vetrarþrestir er söguleg skáldsaga sem gerist árið 1969 og fjallar um fólk á krossgötum sem leggur
allt í sölurnar í von um að tengjast og tilheyra öðrum.
Nánar upplýsingar veitir:
Þorgerður Agla Magnúsdóttir
Verkefnastjóri | Bókmenntir og lestrarhvatning
Thorgerdur.Agla.Magnusdottir@reykjavik.is