Blásum í lúðra

Blásum í lúðra

Hof Menningarhús | Garún kaffihús, Strandgötu 12, 600 Akureyri Kort

lau. 29.08.2026 16:30

Lúðrasveit Akureyrar og glænýir meðlimir hennar leika nokkra góða slagara í tilefni Akureyrarvöku.

Lúðrasveit Akureyrar var stofnuð árið 1942 og hefur æ síðan sett mark sitt á samfélagið á Akureyri. Félagar í hljómsveitinni hafa lagt stund á tónlistarnám ýmist um lengri eða skemmri og eiga það sameiginlegt að vilja gefa af tíma sínum til þessa skemmtilega samfélagsverkefnis.

Viðburðurinn er styrktur af Akureyrarbæ og í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar.

Frítt er á alla viðburði Akureyrarvöku í Hofi.

Fylgstu með dagskrá Akureyrarvöku í Hofi á mak.is

Flytjendur