BJÓRHÁTÍÐ ÖLVERK 2026
Ölverk Pizza & Brugghús, Breiðamörk 2, 810 Hveragerði Kort
fös. 02.10.2026 17:00
Bjórhátíð Ölverk 2026 verður haldin helgina 2. - 3. október í gamla gróðurhúsinu fyrir aftan Ölverk og hlakkar okkur mikið til þess að taka á móti ykkur öllum.. hvort sem þetta verður í fyrsta sinn eða í sjöunda sinn sem þið mættið á þessa frábæru hátíð! 🍺
Við lofum:
- bestu brugghúsunum & framleiðendunum
- skemmtilegasta fólkinu
- geggjuðum mat
- dansvænum tónum
- glimmer / andlistmálningu
- geggjaðir stemningu á heitustu bjórhátíð landsins!
Núna er rétti tíminn til þess að taka helgina frá, búa til hópspjall með öllu þínum uppáhalds bjórhátíðarvinum, bóka gistingu / bústað, pæla í búningaþema og byrja svo bara að hlakka mikið til!
Miðasala fer af stað snemma í sumar og verður auglýst vel svo það mun vonandi ekki fara framhjá neinum! ❤ 🍺
Flytjendur
-
Bjórhátíð ÖlverkBjórhátíðin mun fara fram helgina 3. til 4. október í alvöru ylræktar gróðurhúsi.