Bíódagar - Bíótekið!
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Kort
sun. 13.09.2026 17:00
Árið er 1964 og Tómas, tíu ára drengur í Reykjavík, sér heiminn í gegnum kvikmyndirnar sem hann elskar. Kúrekar, hetjur og ævintýri hvíta tjaldsins blandast hversdagslífinu og verða leið fyrir lítinn strák til að skilja undarlegan heim fullorðna fólksins. Þegar drengurinn er sendur í sveit yfir sumartímann mætast kvikmyndafantasían og íslenskur veruleiki með áhrifamiklum hætti.
Bíódagar er hlý og nostalgísk uppvaxtarsaga í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar sem hlotið hefur fjöldamörg verðlaun.
Hún dregur upp lifandi mynd af liðnum tíma, þar sem bíóferðir voru stórviðburður og gamlar hefðir tókust á við nýja tíma, sjónvarp og amerísk menningaráhrif.
*Sérstakur viðburður
Sýnd í Bíótekinu, sunnudaginn 13. september kl 17:00!
Flytjendur
-
Félagsfræðingafélag ÍslandsFélagsfræðingafélag Íslands
-
BíótekiðKvikmyndasafn Íslands hefur stofnað Bíótekið og mun vera með reglulegar kvikmyndasýningar í samstarfi við Bíó Paradís. Nánari upplýsingar um dagskrá og viðburði er að finna hér undir ,,events" og á Kvikmyndasafn.is og bioparadis.is.
-
Kvikmyndasafn Íslands
Kvikmyndasafn Íslands safnar, varðveitir og miðlar íslenskum kvikmyndum.