ÞAU og Bríet Vagna í Kómedíuleikhúsinu

ÞAU og Bríet Vagna í Kómedíuleikhúsinu

Kómedíuleikhúsið, Kómedíuleikhúsið, Haukadalur Kort

lau. 25.07.2026 20:00

Bríet Vagna og ÞAU

TÓNLEIKAR Í KÓMEDÍULEIKHÚSINU Í HAUKADAL

Dásamleg tvenna á Vestfjörðum! 🌻

🗓 Laugardagskvöldið 25. júlí

🕘 Tónleikar hefjast kl. 20:00

🎟️ Miðasala á midiX - 3.500 kr.

Bríet Vagna

er ung dýrfirsk söngkona sem hefur nýlega lokið framhaldsprófi í rytmísku söngnámi við tónlistarskóla FÍH. Hún hóf ung nám við Tónlistarskóla Ísafjarðar en árið 2022 fluttist hún til Reykjavíkur í frekara tónlistarnám. Bríet Vagna hefur komið fram á ýmsum viðburðum bæði opinberlega og í einkasamkvæmum. Tónlistin hefur alltaf verið stór partur af hennar lífi og nýtur hún sig hvergi jafn vel eins og þegar hún spilar og syngur.

Henni þykir alltaf jafn gott að koma heim í Dýrafjörðinn og hlakkar hún mikið til að stíga á svið í Kómedíuleikhúsinu í Haukadal. Hún lofar ljúfum tónum og notalegri stemningu og hver veit nema að hún flytji eitthvað frumsamið efni á tónleikunum.

___________________

Fylgdu Bríeti á Instagram:

https://www.instagram.com/vagna_music?igsh=MXBzZmw0dXMwcHNzaw%3D%3D&utm_source=qr

☀️☀️☀️☀️☀️

ÞAU

er söng- og leikkonan Rakel Björk og gítar- og trommuleikarinn Gaddi.

Tær rödd Rakelar mætir grófum gítarleik Gadda í frumsamdri tónlist við íslensk ljóð, þar sem áhrif úr rokki, indí, jazzi og poppi fléttast saman. Með looperum og fjölbreyttum effektum á raddir og hljóðfæri skapa ÞAU lifandi og óvæntan hljóðheim á sviði, þar sem aðeins tveir tónlistarmenn fylla rýmið af tónlist.

ÞAU hafa sent frá sér plöturnar ÞAU taka Vestfirði og ÞAU taka Norðurland, sem hafa hlotið góðar viðtökur, og vinna ÞAU nú að þriðju plötunni, ÞAU taka Suðurland.

ÞAU komu nýverið fram á HEIMA í Hafnarfirði og halda nú ferðalaginu áfram um landið!

___________________

Fylgstu með hljómsveitinni ÞAU:

https://open.spotify.com/artist/6Ct50lb1SYNbNs1JEPDGcJ...

EPK/Website: https://www.rakelbjork.com/epk

Facebook: https://www.facebook.com/thaucompany

Instagram: https://www.instagram.com/thau.company/

Flytjendur

  • ÞAU
    ÞAU

    Hljómsveitin Þau er samstarfsverkefni listafólksins og hjónakornanna Rakelar Bjarkar Björnsdóttur og Garðars Borgþórssonar. Tvíeykið hefur þegar gefið út tvær plötur, ,,Þau taka Vestfirði” og ,,Þau taka Norðurland” og haldið fjölda tónleika. Um er að ræða tónlist sem samin er við ljóð skálda annars vegar frá Vestfjörðum og hins vegar frá Norðurlandi.

  • Bríet Vagna

    Vestfirsk söngkona sem hefur verið að koma fram á hinum ýmsu sviðum.