Bergmál fjallanna - útgáfutónleikar Sigurdísar Tryggvadóttur í Miðgarði
Miðgarður Varmahlíð, v Birkimel, 561 Varmahlíð Kort
mið 4. nóv 2026 20:00
Bústaðu viðburðinn!Tónskáldið, píanóleikarinn og söngkonan Sigurdís Tryggvadóttir frá Ártúnum í Blöndudal snýr aftur á heimaslóðir með sína fyrstu plötu, Bergmál fjallanna.
Tónleikarnir í Miðgarði í Varmahlíð verða haldnir 4. nóvember og hefjast kl. 20. Aðgangur er ókeypis. Tónleikarnir vara í klukkustund og boðið verður upp á vöfflukaffi að tónleikum loknum.
Bergmál fjallanna á rætur sínar í djassi en innblásturinn að tónsmíðunum og plötunni sækir Sigurdís heim í landslagið sem mótaði hana, fjöllin og bergmálið sem endurómar þeirra á milli.
Þessir endurómar tengjast arfleifð Jónasar Tryggvasonar (1916–1983), afabróður Sigurdísar. Jónas var brautryðjandi í tónlistarstarfi Austur-Húnavatnssýslu, samdi lög sem hafa lifað í sögu Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps og gaf út ljóðabókina Harpan mín í hylnum (1959).
Jónas byrjaði ungur að missa sjónina og hefur Sigurdís samið tónlist við persónuleg og myndræn ljóð hans. Á plötunni hafa einnig tónverk hans við ljóð Davíðs Stefánssonar og Þorsteins Valdimarssonar fengið nýtt líf.
Ásamt Sigurdísi spila hinn pólski kontrabassaleikari Mariusz Praśniewski og trommuleikarinn Péter Horváth frá Ungverjalandi. Öll búa þau í Kaupmannahöfn. Á tónleikunum verður vínylplatan Bergmál fjallanna til sölu. Með útgáfunni fylgja fimm ljóð af plötunni ásamt enskum þýðingum þeirra.
Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra og Menningarsjóði KS. Vöfflukaffið er styrkt af Vilko.