Beint áfram jazzkvartett - Múlinn jazzklúbbur
Harpa | Kaldalón, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
mið 14. okt 2026 20:00
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með haustdadagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 14. október kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur fram Beint áfram jazzkvartett. Á tónleikunum mun kvartettinn kafa ofan í samstarf trompetleikarans Art Farmer og gítarleikarans Jim Hall. Samstarf þeirra skilaði eftirminnilegum hljóðritunum á sjöunda áratugnum og síðar þegar þeir tóku upp þráðinn að nýju. Samspil Farmers og Halls einkenndist af einstakri næmni, vönduðu lagavali og ríkulegu rými fyrir spuna. Beint áfram hyggst heiðra þessa tvo meistara jazzsögunnar með eigin túlkunum á tónlist sem tengist samstarfi þeirra. Eins og nafn sveitarinnar gefur til kynna verður hefðbundinn „straight-ahead jazz“ í fyrirrúmi, þar sem samspil, sveifla og spuni fá að njóta sín. Kvartettinn lofar fjölbreyttum og lifandi tónleikum í anda Farmers og Halls, en um leið með sína eigin rödd að leiðarljósi. Meðlimir kvarettsins eru, Snorri Sigurðarson sem leikur á trompet, gítarleikarinn Ásgeir Ásgeirsson, Þorgrímur Jónsson sem leikur á bassa og trommuleikarinn Erik Qvick.
Spennandi haustdagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í mðjan desember. Múlinn er að á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu. Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna. Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu