Bangsafjör á bangsadaginn

Bangsafjör á bangsadaginn

Bókasafn Garðabæjar, Garðatorg 7, 210 Garðabær Kort

þri 27. okt 2026 10:00

Bústaðu viðburðinn!

Alþjóðlegi bangsadagurinn verður haldinn hátíðlegur mánudaginn 27.október í bókasafninu Garðatorgi.

Bókasafnsbangsinn tekur glaður á móti öllum, umkringdur bangsabókum, á afmælisdaginn sinn.

Myndabás með skrautlegum bakgrunni verður í boði kl.9:30 – kl.18. Upplagt að taka myndir af sér og uppáhaldsbangsanum.

Hægt verður að lita bangsamyndir, föndra bangsabókamerki og að leysa bangsagetraun, en þrír heppnir þátttakendur verða dregnir út föstudaginn 30.okt kl.12 og fá þeir bangsa í verðlaun.

Hvetjum börn og fjölskyldur til að koma og gleðjast saman með böngsunum, vinalegu kúrufélögunum okkar.

Lestur er bestur með bangsa á bókó!