Ball í göngugötunni
Göngugatan, Göngugatan Kort
lau. 29.08.2026 20:00
Ágúst Brynjarsson og hljómsveit taka yfir Göngugötuna og hlaða í heljarinnar ball með tilheyrandi fjöri!
Miðbærinn og Göngugatan iða af lífi á Akureyrarvöku. Ekki láta þig vanta á alvöru dansiball með framúrskarandi bandi.
Hljómsveitina skipa:
Ágúst Brynjarsson - gítar og söngur
Bjarni Karlsson - bassi
Eyþór Alexander Hallsson - hljómborð
Daníel Andri Eggertsson - gítar
Gunnar Illugi Sigurðsson - trommur
Ágúst Brynjarsson hefur verið að gera gott mót að undanförnu. Hann gaf út plötuna Hjartað á milljón fyrr á árinu og sá nýverið um brekkusönginn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Hér kemur Ágúst fram á heimavelli ásamt fríðum flokki meðreiðarsveina sem munu skapa einstaka stemningu.
Flytjendur
-
AkureyrarvakaÁrleg bæjarhátíð í Akureyri
-
Ágúst BrynjarssonÁGÚST BRYNJARSSON
Contact : agustmusic@agustmusic.is
https://www.agustmusic.is