ÓGLEYMABALL Á VAGNINUM.
Vagninn, Flateyri, Hafnarstræti 19, 425 Flateyri Kort
lau. 11.07.2026 23:00
Okkar árlega ógleymaball verður haldið að venju þann 11 Júlí næstkomandi. Þetta er svona óformlegur fastur liður sem er óbeint tengdur Listavestrinu. Þarna koma fram heimsfrægir tónlistarmenn að sunnan sem taka slagara og tilgangur þess er að skemmta auðvitað. Mennirnir eru nefnilega skemmtikraftar og ætla að skemmta okkur fram á rauða nótt, en þá ætlar DJ KGB að taka við fjörinu og taka við dans keflinu. Það fylgir oft svona uppákomum að fólk dansar og það má dansa. Vagninn er aðdáandi danslistar og hefur hýst marga dansmannveruna í gegnum tíðina. Komið á Vagninn og dansiði!
Já og bæ ðe vei, það verður frítt inn.
Flytjendur
-
DJ KGBDJ performance