Harmonikuhátíð og heyannir / The Reykjavík Accordion Festival and Haymaking

Harmonikuhátíð og heyannir / The Reykjavík Accordion Festival and Haymaking

Árbæjarsafn, Kistuhylur 4, 110 Reykjavík Kort

sun. 12.07.2026 13:00

Sunnudaginn 12. júlí verður hin árlega Harmonikuhátíð Reykjavíkur haldin í samstarfi við Árbæjarsafn og hefst dagskráin kl. 13:00 og stendur til kl. 16:00 🪗

Á hátíðinni, sem haldin er í minningu stofnanda hennar, Karls Jónatanssonar harmonikufrumkvöðuls, koma fram margir af landsins bestu og þekktustu harmonikkuleikurum í fallegu umhverfi safnsins.

Þetta er 28. árið sem Harmonikuhátíðin er haldin og hefur þetta oftar en ekki verið vinsælasti viðburður Árbæjarsafns á hverju sumri.

Hátíðin í ár er tileinkuð minningu Guðrúnar Guðjónsdóttur sem var driffjöðrin í Vitatorgsbandinu en Guðrún lést sunnudaginn 31. maí síðastliðinn. Guðrún var alltaf fyrst til að bjóða sig fram til spilamennsku á Harmonikuhátíðinni og tók þátt frá því sumarið 1999.

Á meðal þeirra sem koma fram á hátíðinni í ár eru hljómsveitir frá Félagi harmonikuunnenda í Reykjavík og Harmonikufélagi Reykjavíkur, Agnes Harpa Jósavinsdóttir og Maria Traikova frá Félagi harmonikuunnenda við Eyjafjörð, hljómsveit frá Félagi harmonikuunnenda á Suðurnesjum, Vitatorgsbandið, Páll Elíasson og Oddur Fjeldsted.

Á safninu geta gestir, ungir sem aldnir, jafnframt fylgst með og tekið virkan þátt í heyönnum eins og þær tíðkuðust fyrir daga heyvinnuvéla, með þeim fyrirvara að veður haldist þurrt. Um aldir höfðu Íslendingar engin önnur verkfæri en ljá, orf og hrífu til að afla vetrarforðans. Víða var heyjað upp á gamla mátann fram yfir miðja síðustu öld, en nú eru gömlu handbrögðin sjaldséð í sveitum landsins. Missið ekki af þessu tækifæri til að komast í kynni við orf, ljá og hrífur og taka þannig virkan þátt í heyönnum á Árbæjarsafn. 🌾

Athugið að heyannir geta fallið niður ef veður er óhagstætt en þá er í það; minnsta alltaf hægt að skemmta sér við fallega harmonikutóna og kíkja í kaffi á kaffihús safnsins í Dillonshúsi.

Dagskráin stendur frá klukkan 13:00-16:00 en safnið er opið 10:00-17:00. Ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa.

Öll velkomin!

Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.

Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur).

Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins.

Öll bílastæði eru ókeypis.

//

Flytjendur