Atvikavaktin - Örnámskeið fyrir ferðaþjónustuaðila
mið 30. sep 2026 13:00
Ferðaþjónustan er ein stærsta atvinnugrein landsins og undirstaða efnahagslífsins á Íslandi. Um það bil 4.000 fyrirtæki og tæplega 35.000 starfsmenn taka á móti nær þremur milljónum ferðamanna á hverju ári. Til að tryggja áframhaldandi velgengni er mikilvægt að öryggi og upplifun gesta sé ávallt í fyrirrúmi. En þrátt fyrir góðan árangur eru enn tækifæri til að gera betur.
Reglulega koma upp alvarleg atvik sem geta haft mikil áhrif á fólk og samfélag – og fleiri minni atvik sem fæstir frétta af, svokölluð næratvik sem hefðu getað farið verr. Öll skipta þau máli enda eiga flest slys sér aðdraganda.
Til að stuðla að auknu öryggi kynnir Ferðamálastofa Atvikavaktina sem stendur öllum ferðaþjónustuaðilum til boða, endurgjaldslaust. Hlutverk hennar er að halda utan um skráningu slysa, óhappa og næratvika á einfaldan, samræmdan og gagnlegan hátt.
Markmiðið er að efla forvarnir í ferðaþjónustu með því að safna saman upplýsingum um slys, óhöpp og næratvik. Þannig má greina hættur fyrr og grípa til úrbóta áður en þær leiða til alvarlegra afleiðinga.
Á þessu stutta og hnitmiðaða námskeiði er Atvikavaktin kynnt fyrir ferðaþjónustuaðilum og þeim leiðbeint með fyrstu skrefin.