Anna Gréta, Silva Þórðar ásamt Ómari Guðjónssyni

Anna Gréta, Silva Þórðar ásamt Ómari Guðjónssyni

Iðnó, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík Kort

sun. 30.08.2026 21:00

(English below)

Anna Gréta, Silva Þórðar ásamt Ómari Guðjónssyni (IS)

Sunnudagurinn 30. ágúst | Iðnó

21:00

Kvöldpassi*

Söngkonurnar Anna Gréta og Silva Þórðardóttir sameina krafta og bjóða upp á hugljúfar ábreiður, frumsamið efni og uppáhalds jazzinn sinn. Silva og Anna Gréta hafa verið bestu vinkonur síðan á unglingsárunum og þróað með sér einstakt samspil og sameiginlega tilfinningu fyrir túlkun. Þær koma núna fram í fyrsta skipti með frumsamið efni sem þær hafa unnið að saman og með þeim leikur Þorleifur Gaukur Davíðsson á pedalsteel og munnhörpu og gítar. Þorleifur Gaukur er einn eftirsóttasti tónlistarmaður Íslands í dag og hefur m.a. túrað með Kaleo, tekið upp með Laufeyju og gefið út plötuna "Lifelines" sem hlaut einróma lof gagnrýnanda.

Silva Þórðardóttir hefur um árabil verið meðal vinsælustu jazzradda landsins. Hún gaf út plötuna Skylark árið 2019 og hefur hlotið þrjár tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir jazzsöng, auk þess að koma reglulega fram með Jazzkonum og mörgum af fremstu jazzleikurum Íslands.

Anna Gréta, píanóleikari, söngkona og tónskáld, hefur vakið athygli á Norðurlöndum og víðar með plötum sínum Nightjar in the Northern Sky (2021) og Star of Spring (2024) á vegum ACT Music. Hún hefur unnið íslensku tónlistarverðlaunin þrisvar sinnum og skapað sér sterkan sess sem ein áhugaverðasta jazztónlistarkona sinnar kynslóðar.

Silva Þórðardóttir - söngur

Anna Gréta - söngur, píanó og hljómborð

Ómar Guðjónsson - pedal steel og gítar

Sunnudagur 30. ágúst

19:00 – Iðnó | Tu ha? Tu bjö! (IS)

20:00 – Iðnó | Mikael Máni quintet (IS)

21:00 – Iðnó | Anna Gréta, Silva & Ómar Guðjónsson (IS)

Kvöldpassi kostar 7.990 kr. í Iðnó en við bjóðum upp á afsláttarverð, 5.990 kr., fyrir þau sem kjósa lægra verð og sérstakt stuðningsverð fyrir velunnara hátíðarinnar, 8.990 kr.

Flytjendur