"Alltaf er einhver sem grætur" - Loksins Fado í Bergi menningarhúsi, Dalvík!
Menningarhúsið Berg, Goðabraut 2, 620 Dalvík Kort
fös 2. okt 2026 20:00
Bústaðu viðburðinn!FORSALA
Í Menningarhúsinu Bergi, Dalvík á opnunartíma
Virkir dagar: 11:00-17:00
Laugardagar: 13:00-16:00
Sunnudagar: LOKAÐ
ATH!
FORSALA FER EINUNGIS fram á staðnum og í gegnum netfangið: utlan@dalvikurbyggd.is
Forsölu lýkur 1.okt.
FORSÖLUVERÐ – 6.500 KR.
VERÐ VIÐ HURÐ - 7.500 KR.
Frekari upplýsingar í síma 460 4930.
Jose Manuel Neto hinn þekkti portúgalski fadogítarleikari mun verða gestur minn á tónleikum föstudaginn 2. október kl. 20.00. Við munum endurtaka leikinn frá því í Hörpu á síðasta ári en núna fyrir norðan. Við munum spila nýju lögin mín í fadobúningi og önnur þekktari lög sem passa einstaklega vel við fadogítarinn.
Það eru mikil forréttindi að fá að vinna með Jose og það er unun á að hlýða hann leika af fingrum fram, en hann mun færa okkur ekta fado beint í æð. Fado er ástríðu- og tegafullt tónlistarform sem felur í sér mikla túlkun í gegnum sögur en einnig án söngs en þá tekur þessi sérstaki hljómur Fadogítarssins við. Þetta eru þjóðlög þeirra portúgala. Jose Manuel er vel þekktur í bransanum í Lissabon og er mikið bókaður fram í tímann, en vildi alls ekki sleppa að koma til Íslands og koma norður á heimaslóðir mínar. Mikill heiður það.
Með okkur José munu stíga á stokk þeir Örn Eldjárn á gítar og Jón Rafnsson á bassa.
Listrænn stjórnandi: Aðalbjörg Kristín Jóhannsdóttir
ATH! Frá kl. 18:00-19:30 fyrir tónleikana verður hægt að kaupa fiskisúpu á Hólnum, veitingastað menningarhússins. Pantanir í síma: 842 1978.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Kær kveðja,
Kristjana.