Albúm

Albúm

Borgarleikhúsið | Stóri Salur, Listabraut 3, 103 Reykjavík Kort

fim. 18.03.2027 20:00

ISK 7900.00
Miðar / Skráning
ISK 7900.00
Miðar / Skráning

ALBUM

Albúm eru meira en bara safn laga. Þau eru heimar, menningarfyrirbæri, frásagnarbogar og landslag tilfinninga. Tímahylki. Töfrar. Þau eru persónuleg en um leið pólitísk. Þegar albúm er gefið út fjölgar það sér ósjálfrátt í gegnum hlustendur sína. Löngu eftir útgáfu halda albúmin áfram að móta það hvernig við skiljum okkur sjálf og heiminn í kringum okkur. Þau verða að hljóðrásum fyrstu ástarinnar og ástarsorganna, uppreisnanna, harmsinsog vonarinnar um framtíðina.

Nýjasta verk þeirra Alexanders Roberts og Ásrúnar Magnúsdóttur ber titilinn Albúm. Þar verða áhrifarík albúm sem eru samofin þjóðarsálinni, sviðsett í heild sinni - frá upphafi til enda.

Í kjarna verksins er spurt: Hvað er albúm? Og að hve miklu leyti tilheyrir það þeim sem hafa hlustað á það, lifað með því, rifist við það, dansað við það, grátið með því og borið það með sér í gegnum lífið?

Fyrir hverja sýningu kemur saman húsband verksins, dansarar frá Íslenska dansflokknum og hópur hlustenda víðs vegar að. Saman reyna þau að stíga inn í heim albúmsins: hlusta af athygli, flytja það, dansa við það, spyrjagagnrýninna spurninga og kanna hvað það hefur að segja um samtímann.

Albúm er að hluta til dansverk, að hluta til tónleikar, að hluta til hlustunarpartý, - það er sameiginlegt ferðalag inn í heim albúmsins. Verkið rannsakar hvernig tónlist leiðir fólk saman og veltir því fyrir sér hvers konar albúm, og hvers konar hlustun, heimurinn þarfnast í dag.

Aðstandendur:

Höfundar: Alexander Roberts og Ásrún Magnúsdóttir.

Húsbandið: Felix Urbina Alejandre, Marta Ákadóttir og Sólrún Kjartansdóttir.

Hönnun og útlit: Guðný Hrund Sigurðardóttir.

Meðframleiðandi: Murmur framleiðslufyrirtæki.

Ásrún Magnúsdóttir og Alexander Roberts hafa unnið náið saman um árabil og skapað dans- og sviðslistarverk sem ögra hefðbundnum hugmyndum um dans og kóreógrafíu. Í samstarfi sínu leitast þau við að gefa rými þeim röddum og sjónarhornum sem sjaldnar fá að heyrast og skapa verk sín í nánu samtali við fólkið sem þau vinna með.

Samstarf þeirra hefur tekið á sig margvíslegar myndir og saman hafa þau skapað verk með ungmennum, íbúum fjölbýlishúsa og öðrum samfélagshópum, auk þess að setja upp staðbundin verk á heimilum fólks og í hversdagslegu umhverfi.

Verk þeirra hafa vakið athygli bæði hérlendis og erlendis, hlotið verðlaun og tilnefningar og verið sýnd í virtum leikhúsum og hátíðum víða um Evrópu.

Flytjendur