AGI Open - International design conference

AGI Open - International design conference

Gamla bíó, Ingólfsstæti 2a, 101 Reykjavík Kort

fim. 01.10.2026 09:00


AGI Open er alþjóðleg hönnunarráðstefna á vegum Alliance Graphique Internationale (AGI), samtaka grafískra hönnuða, sem leiða árlega saman framúrskarandi hönnuði og skapandi fólk hvaðanæva að úr heiminum - nú í fyrsta skipti á Íslandi.

Yfir 30 meðlimir AGI samtakanna taka þátt í dagskránni og því um ótrúlega innspýtingu að ræða fyrir íslensku senuna. Bakgrunnur flestra er grafísk hönnun, en þetta fólk fæst við allt milli himins og jarðar á sviði sjónrænnar menningar og miðlunar hvort heldur sem er sjálfstætt starfandi eða á auglýsingastofum, hönnunarstofum, hjá útgáfum eða stórfyrirtækjum á borð við Pentagram og Google.


1.október, kl 9:00 - 17:00 í Gamla bíó

2.október, kl 9:00 - 17:00 í Grósku


Fylgist með þróun dagskrárinnar á vef AGI Open og Instagram.


Verð

Early Bird - Tveggja daga passi: 19.900 til 16.ágúst

Tveggja daga passi - Meðlimir FÍT og MHA: 24.900

Tveggja daga passi- Fullt verð: 34.900

Einn dagur - Fullt verð: 29.900

Nemamiði - Tveggja daga passi: 9.900

AGI Open er hluti af ráðstefnunni AGI Congress, árlegum viðburði samtakanna og unnin í samstarfi við FÍT og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Verkefnastjórn, framleiðsla og listræn stjórn er í höndum Karlssonwilker, sem eru meðlimir í AGI. Viðburðurinn er ekki haldinn í hagnaðarskyni.


Flytjendur