Afmæli Guðmundar Hauks
Félagsheimilið Hvammstanga, Klapparstíg 4, 530 Hvammstangi Kort
mið 4. nóv 2026 17:00
Bústaðu viðburðinn!Nú er ég að verða 75 ára. Í tilefni af því langar mig að bjóða til samsætis í Félagsheimilinu á Hvammstanga á afmælisdaginn. Mér finnst svo gaman að vera með vesen og gera eitthvað skemmtilegt.
Dagskráin er ekki fullmótuð en þetta eru drög að plani:
• Boðið upp á matarmikla súpu og brauð að hætti Patta kokks og kaffi og konfekt á eftir.
• Þar sem þetta er á æfingatíma Kórs eldri borgara ætla ég að bjóða þeim að æfa í Félagsheimilinu að þessu sinni.
• Stefnt er að því að slá upp dansleik síðustu eina til tvær klukkustundirnar.
• Veislustjórar verða dætur mínar Elín Jóna og Eygló Hrund og skal fólk snúa sér til þeirra ef það hefur þörf fyrir að gera eitthvað skemmtilegt á sviði.
• Gjafir eru afþakkaðar (hættur að drekka og bílskúrinn fullur) en styrkja má Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Hvammstanga
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Til þess að geta áætlað fjölda, væri vel þegið að fólk merkti við hér í viðburðinum ef það kemst.
Eru ekki allir til í smá gleði í miðri viku?
Guðmundur Haukur
P.s. Nánari upplýsingar koma hér þegar nær dregur.