Afhjúpun og afhending Kærleikskúlunnar 2026

Afhjúpun og afhending Kærleikskúlunnar 2026

Listasafn Reykjavíkur | Hafnarhús, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík Kort

mið 2. des 2026 11:00

Bústaðu viðburðinn!

Verið velkomin á afhjúpun og afhendingu Kærleikskúlunnar 2026 í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur, miðvikudaginn 2. desember kl. 11:00.

Gló stuðningsfélag hefur staðið að útgáfu Kærleikskúlunnar frá árinu 2003. Tuttugasta og fjórða Kærleikskúlan verður afhjúpuð við hátíðlega athöfn og afhent fyrirmynd sem hefur stuðlað að aukinni þátttöku og bættum lífsgæðum fatlaðra barna og ungmenna.

Markús Þór Andrésson, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, kynnir listamann Kærleikskúlunnar 2026 en Listasafnið hefur frá upphafi veitt Gló aðstoð og leiðsögn við val á listamanni Kærleikskúlunnar. Biskup Ísland, Guðrún Karls Helgudóttir blessar Kærleikskúluna að vanda og tónlist flytur Bjöllukór Tónstofu Valgerðar. Rakel Björk Björnsdóttir, söng- og leikkona, flytur hugljúf jólalög.

Allur ágóði Kærleikskúlunnar rennur til starfsemi Gló í Reykjadal, þar sem fötluð börn og ungmenni fá tækifæri til að njóta sín á eigin forsendum, eignast vini og tilheyra vinasamfélagi jafningja.

Sala Kærleikskúlunnar fer fram í völdum verslunum um land allt dagana 3.-23. desember og í vefverslun Gló - Kærleikskúlan.is

TVG-Zimsen er stuðningsaðili Kærleikskúlunnar og þökkum við þeim hjartanlega fyrir stuðninginn í ár!

Léttar veitingar að athöfn lokinni.

Verið hjartanlega velkomin!

Athöfnin fer fram í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi sem stendur við Tryggvagötu 17. Listasafn Reykjavíkur ber sig eftir því að tryggja gott aðgengi og er viðburðurinn aðgengilegur öllum. Tvö bílastæði fyrir fatlað fólk eru í Grófinni sem er vinstra megin við innganginn inn í Hafnarhúsið. Nokkur bílastæði eru við Hafnarhúsið Geirsgötumegin, en einnig er fjöldi bílastæða í bílahúsinu Vesturgötu 7 og Hafnartorgi sem er aðgengilegt frá Geirsgötu. Bílahús eru einnig í göngufjarlægð við Ráðhús, Kolaport og Traðarkot. Allt eru þetta gjaldskyld bílastæði á vegum Reykjavíkurborgar.