Afhending Viðurkenningar Barnaheilla 2026

Afhending Viðurkenningar Barnaheilla 2026

Mannréttindahús ÖBÍ, Sigtún 42, 105 Reykjavík Kort

fös 20. nóv 2026 14:00

Bústaðu viðburðinn!

Viðurkenning Barnaheilla – Save the Children á Íslandi verður afhent föstudaginn 20. nóvember kl. 14 í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42.

Barnaheill veita árlega viðurkenningu fyrir sérstakt framlag í þágu barna og réttinda þeirra. Viðurkenningin er afhent á degi mannréttinda barna, 20. nóvember, til að vekja athygli á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og mikilvægi þess að standa vörð um réttindi og velferð barna.

Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, afhendir viðurkenninguna.

Guðjón Þorgils Kristjánsson, sem sigraði Söngkeppni Samfés árið 2024 og samdi lag Hinsegin daga 2026, flytur tónlist við athöfnina.

Léttar kaffiveitingar verða í boði að afhendingunni lokinni.

Öll eru hjartanlega velkomin! ❤️

Við biðjum þau sem hyggjast mæta að skrá sig hér: https://barnaheill.is/namskeidin/vidurkenning-barnaheilla/

Við hlökkum til að sjá ykkur!