Aðalheiður Eysteinsdóttir-Frjó og flæði- á Leyni
Leyni, Hafnarstræti 95, 600 Akureyri Kort
fim 8. okt 2026 20:00
Bústaðu viðburðinn!Frjó og flæði
Leyni 8 - 21 okt. 2026
Opnun kl. 18.00
Gjörningur kl. 18.30
Frá huga að hönd og hönd að mynd, flæðir orka sem skilar sér í endurteknum hringlaga formum,
skarast og verða að einhverskonar lífrænum birtingarmyndum sjálfsins.
Litur mætir lit og rammar inn hugmynd sem flæðir eins og af sjálfu sér yfir myndflöt og hefur
samtal við samhliða form.
Eitt afmarkað andartak tekur sér stöðu við hlið annarra frá því í gær eða fyrradag og staðfestir þar
með tilvist sína í heildinni. Flókið samspil lita og forma rennur saman við ógrynni hugsana frá apríl
til október þessa árs. Hringferð, hringlaga hugsun, hringöndun, og frjó falla í jarðveg eða svífa um í
þyngdarleysi hversdagsins.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir fæddist á Siglufirði 23. júní 1963 og bjó þar til 1986, þegar hún
fluttist til Akureyrar. Hún stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri 1989 - 93 og hefur
síðan unnið ýmis störf á sviði myndlistar ásamt því að setja upp ríflega 200 einkasýningar í
14 löndum á 30 ára ferli. Verk hennar má finna á opinberum stöðum víða um land, á
Listasafninu á Akureyri, Listasafni Reykjanesbæjar og í einkasöfnum bæði á Íslandi og
erlendis. Aðalheiður starfrækti Kompuna, gallerí á Akureyri í 8 ár, tók virkan þátt í
uppbyggingu Listagilsins á Akureyri og er einn af stofnendum Verksmiðjunar á Hjalteyri. Hún
hefur verið gjaldkeri Gilfélagsins á Akureyri, varaformaður Myndlistafélagsins á Akureyri og er
félagi í SÍM og Myndhöggvarafélaginu. Árið 2000 var hún útnefnd Bæjarlistamaður Akureyrar
og sama ár hóf hún þátttöku í Dieter Roth akademíunni. Aðalheiður hefur nokkrum sinnum
hlotið starfslaun ríkisins og var útnefnd Bæjarlistamaður Fjallabyggðar fyrir árið 2022. Í
desember 2011 keypti Aðalheiður Alþýðuhúsið á Siglufirði og hefur komið upp
vinnustofu þar. Einnig stendur hún fyrir mánaðarlegum menningarviðburðum og hefur
endurvakið Kompuna í litlu rými þar. Aðalheiður hlaut menningarverðlaun DV árið 2015 og
var tilnefnd til Eyrarrósarinnar 2017 og 2020 fyrir starfið í Alþýðuhúsinu og hlaut síðan
Eyrarrósina 2023.
Helstu einkasýningar Aðalheiðar eru 40 sýninga röð sem sett var upp í 14 löndum í tilefni af
fertugs afmæli hennar, 50 sýninga röð í tilefni af fimmtugs afmælinu og 60 gjörningar á 6
dögum hringinn um landið í tilefni af sextugs afmælinu. Sýning í Non Space Árósum 2015,
Listasafnið á Akureyri 2019, Ráðhússalur Siglufjarðar 2022. Hof menningarhús á Akureyri
2023, Safnasafnið Svalbarðsströnd 2024.
Aðalheiður býr og starfar í Alþýðuhúsinu á Siglufirði og í Freyjulundi 604 Akureyri.
adalheidur@freyjulundur.is
www.althyduhusid.com - sími: 865-5091