Aðalfundur WIFT Íslandi - Kosið um nýja stjórn!

Aðalfundur WIFT Íslandi - Kosið um nýja stjórn!

Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Kort

lau 17. okt 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

Aðalfundur WIFT á Íslandi fer fram laugardaginn 17.10.2026 í

Bíó Paradís klukkan 17:00.

Aðalfundurinn er eingöngu fyrir meðlimi WIFT Íslands. Þeir meðlimir sem hafa greitt félagsgjöld hafa atkvæðisrétt á fundinum.

Ný stjórn WIFT verður kjörin á fundinum. Ef áhugi liggur fyrir að bjóða sig fram í stjórn er bent á að senda tölvupóst á wift@wift.is.

Í tölvupóstinum skal taka fram hvaða stöðu þú býður þig fram í.

Stöður sem er óskað eftir:

- Formaður

Leiðtogi félagsins og andlit þess út á við.

Boðar til stjórnarfunda og stýrir þeim (eða tilnefnir fundarstjóra).

Ber heildarábyrgð á að félagið starfi í samræmi við samþykktir sínar og ákvarðanir aðalfundar.

- Varaformaður

Stígur í hlutverk formanns í forföllum hans.

Aðstoðar formann við stýringu verkefna og tekur oft að sér sérstök afmörkuð verkefni.

- Gjaldkeri

Ber ábyrgð á fjármálum og bókhaldslegri umsýslu félagsins.

Sé um innheimtu félagsgjalda, greiðslu reikninga og gerð ársreiknings. Kynnir fjárhagsstöðuna á stjórnarfundum og á aðalfundi.

- Meðstjórnendur (5)

Almennir stjórnarmenn sem hafa atkvæðisrétt á stjórnarfundum.

Taka að sér ýmsa nefndavinnu, viðburðastjórnun eða önnur afmörkuð verkefni innan félagsins.

- Varamenn (varastjórn (2))

Mæta á stjórnarfundi og taka sæti aðalmanna þegar þeir forfallast.

Í mörgum félögum hafa varamenn málfrelsi og tillögurétt á öllum fundum, en aðeins atkvæðisrétt þegar þeir sitja í forföllum aðalmanna.

Við hvetjum öll til þess að fjölmenna aðalfund WIFT Íslandi.

Dagskrá aðalfundar WIFT Íslandi

- Skýrsla stjórnar

- Farið yfir reikninga félagsins síðustu mánaða

- Kjör á nýrri stjórn.

- Starfsáætlun næsta starfsárs, tillögur að viðburðum, uppákomum, baráttumálum

- Önnur Mál.

Þegar aðalfundi lýkur hvetur fráfarandi stjórn fundargesti til þess að skála fyrir nýrri stjórn í Bíó Paradís.