Aðalfundur Pírata, Pírata í Reykjavík og Pírata í Kópavogi!
Tjarnarbíó, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík Kort
lau 10. okt 2026 13:00
Bústaðu viðburðinn!Aðalfundarboð Pírata, PÍR og PÍK laugardaginn 10. október 2026
Kæru Píratar!
Verið velkomin á sameiginlegan aðalfund Pírata, Pírata í Kópavogi og Pírata í Reykjavík þann 10. október 2026.
Fundurinn verður haldinn í Tjarnarbíói kl. 13:00-17:00. Einnig verður boðið upp á fjarfund.
Dagskrá aðalfundar (birt með fyrirvara um breytingar)
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrslur stjórna Pírata, Pírata í Reykjavík og Pírata í Kópavogi lagðar fram.
3. Samstæðuársreikningur Pírata, PíK og PíR lagður fram til samþykktar.
4. Tillaga um slit félagsins Píratar í Reykjavík - umræður og
ákvarðanataka.
5. Tillaga um slit félagsins Píratar í Kópavogi - umræður og ákvarðanataka.
6. Tillaga um slit óvirkra aðildarfélaga Pírata á grundvelli 10.5 greinar laga Pírata. Umræður og ákvarðanataka. Óvirk aðildarfélög eru: Píratar í NA, Píratar á Suðurlandi og Píratar á Reykjanesi.
—- Hlé —-
7. Umræður og kynning á nýju skipulagi innra starfs Pírata. Formaður Pírata, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, kynnir.
8. Lagabreytingar.
9. Kosningar. Kosning varaformanns til eins árs, kosning varamanns í stjórn Pírata til eins árs skoðunarmenn reikninga, kjörstjórn.
10. Formaður Pírata ræðir áherslur næsta árs.
11. Önnur mál.
Opnað fyrir framboð á x.piratar.is 25. september 2026. Framboðsfrestur verður til 9. október 2026. Fylgist með á piratar.is þar sem upplýsingar um hlutverkin er líka að finna.
Ef einhverjar spurningar vakna þá er hægt að hafa samband á piratar@piratar.is eða reykjavik@piratar.is
Sjáumst!