Að holdgera byggingu: Líkamar í Aalto byggingum

Að holdgera byggingu: Líkamar í Aalto byggingum

Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Kort

mið 21. okt 2026 00:00

Bústaðu viðburðinn!

Sýningin rannsakar samband mannslíkamans og bygginga eftir Aalto í verkum samtímalistamannanna Dafnu Maimon (FI), Ilonu Sagar (UK) og Elinu Brotherus (FI). Listamennirnir eiga það sameiginlegt að hafa dvalið um lengri tíma í byggingunum, búið þar, rætt við fólkið sem þar starfaði og fléttað rýmunum inn í þeirra eigin listrænu vinnu.

Listamenn: Elina Brotherus (FI), Dafna Maimon (FI) och Ilona Sagar (UK).
Sýningarstjóri: Sabina Westerholm

Ilona-Sagar, stilla úr verkinu Other Actors, 2025

Í verkunum er litið á byggingarnar sem meira en kyrrstæða hluti: líkaminn og byggingin mynda gagnkvæmt samband þar sem hvort um sig mótar hitt og ber með sér spor og minningar hins. Í gegnum eigin líkama listamannanna, sem og raunverulegar og ímyndaðar persónur, ferðast verkin á milli rannsóknar og skáldskapar, því skipulagða og því fáránlega, í samskiptum sínum við byggingarnar.

Saman bjóða listaverkin upp á dýpri og víðari sýn á arkitektúr Aalto-hjónanna, sem nær út fyrir hefðbundnar leiðir rannsókna.

Byggingin sem líkami.
Líkaminn sem bygging.

Dafna Maimon, stilla úr verkinu Homebody, 2025


Aalto-hjónin eru þekkt fyrir mannhyggju í arkitektúr sínum, þar sem áhersla er lögð á mannslíkamann með lífrænum formum, hlýjum efnum og sterkri hönnunarmálfræði sem innblásin er af náttúrunni. Hugmyndin um 
Gesamtkunstwerk, eða „heildstætt listaverk“, þar sem ólíkar greinar hönnunar renna saman í eina samstæða heild, var lykilatriði í þessari nálgun. Þau störfuðu á sviði arkitektúrs, borgarskipulags, hönnunar og listar og þróuðu lífrænt hönnunarmál sitt í nánu samtali við mikilvæga listamenn módernismans.

Fleirtalan „Aalto-hjónin“ undirstrikar það samstarf sem bjó að baki þessari starfsemi og vísar ekki aðeins til Alvars Aalto heldur einnig til Aino Marsio-Aalto, Elissu Aalto og víðtækari starfsemi Aalto-stofunnar, en framlag þeirra allra var hluti af þróun og starfsháttum vinnustofunnar.

Lestu um aðgengi í Norræna húsinu. 

Mynd á forsíðu: Elina Brotherus, Watering plants, úr seríunni, In the Architect’s House, 2020

Sýningin hlaut styrk frá Svenska kulturfonden og Amos Andersons Fond.