Lokatónleikar Orgelsumars í Hallgrímskirkju 2026

Lokatónleikar Orgelsumars í Hallgrímskirkju 2026

Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík Kort

sun. 23.08.2026 17:00

ISK 4200.00
Miðar / Skráning
ISK 4200.00
Miðar / Skráning

Lokatónleikar Orgelsumars í Hallgrímskirkju
Sunnudagur 23. ágúst kl. 17
Christian Barthen orgel Bern Münster, Switzerland
Aðgangseyrir 4.200 kr.
Christian Barthen (f. 1984 í Saarbrücken) er organisti og tónlistarstjóri við Dómkirkjuna í Bern, prófessor í orgelleik við Tónlistarháskólann í Bern (HKB) og alþjóðlega starfandi konsertorganisti. Hann stundaði nám í orgelleik, píanóleik og semballeik, auk kirkjutónlistar og tónlistarkennslu, í Saarbrücken, París og Stuttgart. Hann hefur hlotið verðlaun í virtum orgel- og tónlistarkeppnum, þar á meðal Grand Prix de Chartres. Christian Barthen hefur komið fram sem einleikari víða um Evrópu, í Rússlandi, Suður-Ameríku og Austurlöndum fjær. Hann hefur tekið þátt í útvarps-, sjónvarps- og geisladiskaupptökum fyrir Naxos Classics og Ifo/Organ, auk ýmissa stöðva innan ARD, SRF og Radio France. Hann hefur jafnframt starfað sem gestakennari við háskóla í Þýskalandi, Suður-Kóreu, Kólumbíu og Finnlandi.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR

Flytjendur