Svissneski listamaðurinn Zimoun býr til hljóðinnsetningar og skúlptúra úr endurunnu efni sem fellur til í daglegu lífi og iðnaði.
Þessi magnþrungna, dáleiðandi innsetning hefur sterk tengsl við
náttúruna en snertir þó einnig á samfélagslegri gagnrýni, vélrænum ferlum, valdakerfum heimsins og ört vaxandi vélmennavæðingu.
Zimoun nýtir sér staðbundinn efnivið sem hann virkjar með handgerðum, vélrænum ferlum. Krafs, klór, bank og titringur umbreytir sýningarsalnum í Listasafninu í lifandi og ómandi umhverfi.
Zimoun hefur haldið fjölda sýninga og viðburða um heim allan, m.a. í Kóreu, Bandaríkjunum, Frakklandi, Kína og Bretlandi, og hafa verk hans ávallt vakið verðskuldaða athygli.
ZIMOUN
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti 12, 600 Akureyri Kort
fim. 09.07.2026 10:00
Listamaður:
Zimoun (CH)
Sýningagerð:
Studio Zimoun © í samvinnu við Listasafnið á Akureyri
Styrktaraðilar:
Safnasjóður & Pro Helvetia - The Swiss Arts Council
Zimoun (CH)
Sýningagerð:
Studio Zimoun © í samvinnu við Listasafnið á Akureyri
Styrktaraðilar:
Safnasjóður & Pro Helvetia - The Swiss Arts Council
Flytjendur
-
Listahátíð í Reykjavík
Listahátíð í Reykjavík