A! - Yobusha- Dancing With Stones

A! - Yobusha- Dancing With Stones

Hof Menningarhús, Strandgata 12, 600 Akureyri Kort

lau 10. okt 2026 15:00

Bústaðu viðburðinn!

Yubusha – gjörningur í Hofi

Hvernig tengjumst við steinum, landi og þeim andlega veruleika sem við deilum með náttúrunni?

Japanski listahópurinn Yubusha vinnur að rannsókn og nýjum gjörningi á Íslandi þar sem hann kannar hvernig fólk upplifir og myndar tengsl við land, steina og andlega heima í gegnum líkamann.

Verkefnið byggir á samanburði á japanskri hefð Sōmokutō – minnisvörðum sem reistir eru fyrir plöntur og önnur lifandi náttúrufyrirbæri – og íslenskri þjóðtrú um anda og huldufólk, ekki síst tengsl þeirra við steina og landslag á Akureyri og í nágrenni.

Í miðju verkefnisins er hugmyndin um „ritúal líkama“ – hvernig trú, minningar og tengsl við náttúruna eru ekki aðeins hugmyndir heldur eitthvað sem við upplifum og tjáum með líkamanum. Með Butoh-dansi rannsakar Yubusha tengsl lífs, dauða og tilvistar og notar líkamann sjálfan sem verkfæri til að skynja og miðla þessum tengslum.

Gjörningurinn er hluti af áframhaldandi rannsókn Yubusha, þar sem list og rannsókn renna saman. Hópurinn hefur áður skapað verkið Shokei: Summer, Sōmokutō, sem fjallar um hverfulleika lífsins og sorg í tengslum við náttúruna. Á Íslandi þróar hópurinn rannsóknina áfram og skapar nýtt verk út frá vettvangsrannsóknum á landi, steinum og þeim sögum og trúarhugmyndum sem þeim tengjast. Verkefnið skapar þannig samtal milli Japans og Íslands þar sem líkaminn, landið og trúin mætast.