A! - Sigrún Gyða - Song Cycle of Disappointments: River Requiem
Gilfélagið / Deiglan, Kaupvangsstræti 23, 600 Akureyri Kort
fös 9. okt 2026 19:30
Bústaðu viðburðinn!SCOD er sálmur fyrir ár, jökla og hið viðkvæma bil milli sorgar og vonar. Verkið sækir innblástur í kaþólska messu hinna látnu, íslenskar þjóðsögur og sameiginlegan kraft fólks sem ferðast í gegnum daginn, án þess að átta sig á því að það myndar ár.
Lagabálkurinn ferðast frá uppsprettu til sjávar þar sem persónulegt tap, súrrealísk mýkt þess að elska hið ófyrirsjáanlega og ár ókunnugra við sólsetur. Að lokum varpar hann fram spurningunni um hvað rödd getur orðið þegar hún sameinast öðrum.
Með verkinu velti ég fyrir mér hvað þýði raunverulega að verða fyrir vonbrigðum án þess að einblína á mistök, heldur sem vitnisburð um að manni hafi þótt vænt um það sem brást vonum manns. Við höfum öll einhvern tíma orðið fyrir vonbrigðum, með okkur sjálf eða einhvern sem okkur þykir vænt um.
Ég man að minnsta kosti eftir pabba mínum standandi í dyrunum að unglingaherberginu, eftir að hafa sótt mig, nokkuð drukkna, á sveitaball kvöldið áður. Ég fann vonbrigðin næstum líkamlega þegar hann hristi höfuðið af angist, ofan í hamrandi þynnkuna. Mig langar að líta á vonbrigðin sem bilið milli þess sem við vonuðum að yrði og þess sem varð.
Hvernig er að lifa á mörkum óafturkræfðra breytinga og halda áfram?