A Hawk and A Hacksaw í 12 Tónum
12 Tónar, Skólavörðustígur 15, 101 Reykjavík Kort
þri. 01.09.2026 20:00
Enginn aðgangseyrir en Pay what you can, við mælum með 2500 kr. ef þú getur. Öll innkoma rennur til hljómsveitarinnar (see in English below)
12 Tónar og Reykjavík Record Shop kynna tónleika með A Hawk and A Hacksaw í 12 Tónum 1. september. Hljómsveitin hefur verið að túra um Evrópu og óskaði eftir því að fá að spila hér og því er um sannkallaðan hvalreka að ræða fyrir tónlistaráhugafólk hér á landi.
A Hawk and A Hacksaw var stofnuð áriði 2002 í Saumur í Frakklandi af Jeremy Barnes, trommuleikara hljómsveitarinnar Neutral Milk Hotel. Eftir að hafa fengið leið á trommuleik tók hann upp harmonikkuna og heillaðist gjörsamlega af þjóðlagatónlist frá Rúmeníu, Ungverjalandi, fyrrum Júgóslavíu og Tyrklandi. Árið 2004 flutti Barnes heim til Nýju-Mexíkó og kynntist lífs- og tónlistarfélaga sínum, fiðluleikaranum Heather Trost. Fyrsta samtal þeirra snerist um ungverska tónskáldið Béla Bartók. Parið fór í víðtækar tónleikaferðir um Bandaríkin og Evrópu, og síðar víðar, til dæmis til Brasilíu, Tyrklands, Ástralíu og Japans. Þau hafa gefið út fjölda platna á tímum þegar geisladiskar voru seldir á tónleikum og hægt var að ferðast með mikið magn þeirra í handfarangri.
Árið 2005 aðstoðuðu þau landa sinn frá Nýju-Mexíkó, Zach Condon, við að fá plötusamning og léku á frumraun hans. Hann nefndi verkefni sitt Beirut og vakti mikla athygli. Sama ár ferðaðist Barnes til norðausturhluta Rúmeníu, í þorp Róma-fólks (sígauna) sem heitir Zece Prajini, þar sem hann hljóðritaði tónlist með blásarasveitinni Fanfare Ciocarlia. Barnes og Trost fluttu til Ungverjalands árið 2006 og unnu mikið með ungversku þjóðlagasveitinni The Hun Hangar Ensemble.
Þau fluttu aftur til Nýju-Mexíkó seint á árinu 2008 og héldu áfram að ferðast og vinna með fjölbreyttum tónlistarmönnum frá ýmsum hlutum Evrópu og Bandaríkjanna. Árin 2011 og 2012 ferðuðust þau á milli kvikmyndahúsa með nýrri tónlist við sígilda kvikmynd Sergeis Parajanov, „Shadows of Forgotten Ancestors“. Á þessum tíma hófu Barnes og Trost að gefa út eigin tónlist ásamt verkum frá listamönnum víðs vegar að úr heiminum á útgáfufyrirtæki sínu, Living Music Duplication. Árið 2015 unnu þau með BBC Concert Orchestra og klassíska hópnum Stargaze, sem er með aðsetur í Berlín, að stærri útsetningum á tónlist sinni, auk þess sem þau sáu um skipulagningu Transmissions-hátíðarinnar í Ravenna á Ítalíu.
Undanfarin ár hefur parið tekið sér hlé frá tónleikaferðalögum en heldur áfram að gefa út tónlist. Heather Trost hefur gefið út þrjár sólóplötur sem hlotið hafa lof gagnrýnenda. Þau hafa nýlega samið tónlist fyrir kvikmyndagerðarmanninn Peter Strickland, svo dæmi sé tekið. Trost hefur byggt upp tónlistarkennslu í píanó- og fiðluleik í Albuquerque, en Barnes vann með ungmennum í fangelsum og flóttamannabúðum og hóf síðan að kenna trommuleik auk þess að sjá um hljóðupptökur og hljóðblöndun fyrir aðra tónlistarmenn. Hann gaf nýverið út sólóplötu undir nafninu Human Error.
- - -
No admission fee but we recommend paying 2500 kr. if you can. All income goes to the band.
A Hawk and A Hacksaw began in Saumur, France, in 2002, by Jeremy Barnes, the drummer of Neutral Milk Hotel, who, having burnt out on playing drums, picked up the accordion and became obsessed with folk music from Romania, Hungary, the former Yugoslavia, and Turkey. In 2004 Barnes moved home to New Mexico, and met his partner in life and music, violinist Heather Trost. Their first conversation was about the Hungarian composer Bela Bartok. The pair toured extensively in the U.S. and Europe, and eventually further afield, to Brazil, Turkey, Australia, Japan.
They released a good amount of recordings in an era when CDs were sold at shows and one could carry a large amount of them in carry on luggage.
In 2005, they helped a fellow native New Mexican, Zach Condon get a record deal, and played on his debut album. He named his project Beirut. That same year, Barnes traveled to the far Northeast of Romania, to the Roma (gypsy) village of Zece Prajini, where he recorded with the brass band Fanfare Ciocarlia. Barnes and Trost moved to Hungary in 2006 and worked extensively with four Hungarian folk group The Hun Hangar Ensemble. They moved back to New Mexico in late 2008 and continued touring, working with a variety of musicians from different parts of Europe and the U.S. In 2011 and 2012, they toured cinemas with a new soundtrack to Sergei Parajanov’s classic film “Shadows of Forgotten Ancestors.” Barnes and Trost began releasing their own records and releases from around the world on their label Living Music Duplication around this time. In 2015, they worked with the BBC Concert Orchestra and the Berlin based classical ensemble Stargaze on larger orchestrations of their music, and they curated the Transmissions festival in Ravenna, Italy.
In the past few years, the pair have taken a break from touring, but still release music. Heather Trost has released three solo records to critical acclaim. They have recently written music for film director Peter Strickland among others. Trost has developed a thriving piano and violin studio in Albuquerque, while Barnes worked with incarcerated and refugee youth and then began teaching drums as well as engineering records for other musicians. He recently released a solo record under the name Human Error.
Flytjendur
-
Reykjavik Record ShopReykjavík Record Shop er plötubúð sem sérhæfir sig í sölu á nýjum og notuðum vínylplötum og persónulegri þjónustu