GÓSS í Básum, Þórsmörk

GÓSS í Básum, Þórsmörk

Básar Þórsmörk, Básar á Goðalandi, 861 Hvolsvöllur Kort

lau. 11.07.2026 20:00

Elsku vinir allir.

Við komum í Þórsmörk áttunda árið í röð og höldum tónleika í Básum laugardagskvöldið 11. júlí.

Við getum ekki beðið og vonumst að sjálfsögðu til að sjá sem allra flesta, enda er þetta alltaf ógleymanleg og dásamleg stund.

Tónleikar hefjast klukkan 20:00 og miðar verða ekki seldir í forsölu en verða seldir á staðnum.

Það er nóg pláss, hægt að grilla, hægt að sturta sig, hægt að pissa, kaupa drykki, tjalda og njóta.

Sjáumst!

-GÓSS

Flytjendur

  • GÓSS
    GÓSS

    Tríóið Góss er skipað Sigríði Thorlacius og bræðrunum Sigurði og Guðmundi Óskari Guðmundssonum. Þau hafa undanfarin ár flakkað spilandi og syngjandi um landið.

  • Útivist
    Útivist

    www.utivist.is | Útivist er ferðafélag sem býður upp á fjölbreyttar ferðir um náttúru Ís