9D umbreytandi öndunarferðalag Letting go

9D umbreytandi öndunarferðalag Letting go

Lífsgæðasetur St. Jó, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður Kort

mið 2. des 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Letting Go.

Kannski situr eitthvað úr fortíðinni í þér sem truflar þig og hefur áhrif á þitt daglega líf þótt þú takir ekki eftir því. Sjálfsgagnrýni tekur mikið pláss eða þú hefur misst tengsl við það sem skiptir þig máli, orkuleysi og streita einkenna líðan þína. Hér færðu tækifæri til að staldra við, beina athyglinni inn á við og kanna hverju þú vilt sleppa tökum af sem degur þig niður eða heldur aftur af þér.

skráning

yogahusid@gmail.com eða inn á yogahusid.is

Verð 9500kr

Áviningur af 9D öndun.

Minni streita og spenna

Meðvituð öndun getur hjálpað okkur að hægja á, skynja spennu og finna leiðir til að mæta álagi. Rólegar öndunaræfingar geta stutt slökun og nýst áfram í daglegu lífi.

Betri tengsl við tilfinningar

Þegar við gefum okkur tíma til að finna og taka eftir getum við átt auðveldara með að átta okkur á eigin líðan. Þannig skapast svigrúm til að velja viðbrögð okkar og tjá þarfir okkar skýrar.

Skýrari hugur og meiri einbeiting

Að beina athyglinni að önduninni er æfing í nærveru. Hún getur hjálpað okkur að stíga út úr endurteknum hugsunum og snúa aftur að því sem við viljum sinna.

Breytt orka og líðan

Öndun hefur áhrif á hvernig okkur líður í líkamanum. Sum finna fyrir aukinni orku og léttleika eftir ferðalag, á meðan önnur finna helst þörf fyrir hvíld og ró.

Stuðningur við svefn og hvíld

Róleg öndun getur hjálpað okkur að minnka spennu fyrir svefn og undirbúa líkamann fyrir hvíld. Áhrifin eru þó mismunandi eftir einstaklingum og tegund öndunaræfinga.

Rými fyrir nýjar hugmyndir

Þegar athyglin fær hvíld frá verkefnum og kröfum getur orðið auðveldara að sjá hlutina frá öðru sjónarhorni. Þar getur skapast rými fyrir sköpun, nýjar hugmyndir og skýrari sýn.

Meiri seigla í daglegu lífi

Að læra að þekkja eigin spennu og viðbrögð getur hjálpað okkur að bregðast fyrr við álagi. Öndunin getur orðið eitt af verkfærunum sem við grípum til þegar mikið er að gerast.

Aukin líkamsvitund og sjálfsumönnun

Öndunaræfingar geta stutt almenna vellíðan og hjálpað okkur að taka betur eftir þörfum líkamans. Þær koma þó ekki í stað heilbrigðisþjónustu eða meðferðar.

Þú ferð á þínum forsendum. Það er alltaf í boði að hægja á, anda eðlilega eða taka hlé.