Sýning | Minningar af bakkanum

Sýning | Minningar af bakkanum

Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort

þri. 07.07.2026 10:00

Tómas Helgi Kristjánsson sýnir í Spönginni.

Verkin á sýningunni eru byggð á raunverulegum útlínum íslenskra veiðiáa og vatnasvæða. Með einföldum línum og stílhreinni framsetningu eru form staðanna dregin fram á nýjan hátt, þar sem áherslan færist frá smáatriðum yfir í heild og tilfinningu. Hvert verk er þannig bæði staður og minning- tilraun til að fanga það sem margir tengja við en sjá sjaldan á þennan hátt.

Verkin vísa í árnar sem við þekkjum, minningarnar sem verða til á bökkum þeirra og tilfinningarnar sem við berum gagnvart þeim. Þau minna á ósnortna náttúru og ábyrgð okkar gagnvart henni.

Sýningin er fyrsta einkasýning Tómasar og markar upphaf á frekari þróun verkefnisins Veiðislóðar.

Sýningaropnun verður föstudaginn 5. júní kl 16:30.

Hluti af sölu verka á sýningunni rennur til Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF).

Sýningin stendur til 30. júlí.

Viðburðurinn á heimasíðu Borgarbókasafnsins:

https://borgarbokasafn.is/veidislod

Flytjendur