Sång, Sax & Slagverk
Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Kort
sun. 19.07.2026 15:00
Myndrænir textar og töfrandi andrúmsloft bjóða áheyrendum að stíga inn í draumkenndan heim sem blandar saman áhrifum frásagnarhefðar, íslenskum þjóðsagnaarfi og hversdagsleika samtímans. Anna Sóley er íslenskt söngvaskáld og hefur komið víða við í tónlist sem söngkona og fiðluleikari bæði á Íslandi og í Evrópu. Hún kemur fram ásamt systur sinni, Lilju Maríu sem spilar á Huldu, sjálfsmíðað hljóðfæri og saman sækja þær tónlistarlega til söngvaskálda sjöunda og áttunda áratugarins.
Anna vinnur nú að annarri sólóplötu sinni, Painting Reality, Photographing Fiction, konsept plötu sem kannar hvernig frásögn á það til að hafa áhrif á sýn okkar á tilveruna. Fyrsta plata hennar, Modern Age Ophelia, kom út 2022 og tónlistargagnrýnandinn David Fricke hafði þetta að segja um verkið: „Ef þú heldur að enginn geri plötur lengur sem minna á fyrstu fjórar plötur Joni Mitchell, leggðu við hlustir hér.“
Flytjendur
-
Sång, Sax & SlagverkSång, Sax & Slagverk is a Swedish music ensemble, bringing you a new wave of Scandinavian Jazz/Folk. -
Anna Sóleysöngur, fiðla, gítar