Krakkaskemmtun - Ein með Öllu
Akureyrarvöllur, , Akureyri Kort
lau. 01.08.2026 14:00
Ein með Öllu 2026 kynnir: Krakkaskemmtun í boði Kids cool shop og ísbúðar Akureyrar.
Fjör fyrir krakka á öllum aldri.
Lalli töframaður er kynnir og ætlar að sýna allskonar töfrabrögð.
Blæja og Bára mæta í myndastuði ásamt Hvolpasveitinni sem elska að fá fimmur!
Sólon og Dimma dúskur ætla að slá á létta strengi og taka jafnvel lagið.
Bjössi Brunabangsi ætlar að tryggja að allir séu öruggir, en hann kann reglurnar upp á 10!
10. bekkur í Lundarskóla sýnir brot úr sýningu sinni 'Mamma Mia' sem sett var á svið vor 2026 og sló í gegn.
Ef allir verða í stuði að þá eigum við von á að leynigestur stígi á stokk(!!)
Dagskrána í heild má finna á heimasíðunni https://www.einmedollu.is
Flytjendur
-
Ein með öllu - Akureyrimikið af flottasta hæfileikafólki landsins kemur fram á Einni með öllu um verslunarmannahelgina
-
Ein með öllu
Fjölskylduhátíð með fjölbreyttum viðburðum.
-
Lalli töframaður
Töframaður sem skoðar muninn á töfrum og vísindum.
-
Lalli
Leiðir fjöldasönginn.
-
HvolpasveitinPerforms for children