KRAKKAVAKA
Salurinn, Hamraborg 6, 200 Kópavogur Kort
lau. 19.09.2026 14:00
Hádegistónleikar fyrir alla fjölskylduna
Fjölskyldutónleikar þar sem börn og ungmenni stíga á svið og kynna afrakstur vinnu sinnar með kennurum og leiðbeinendum sem koma að hátíðinni. Á tónleikunum hljóma þjóðlög, danslög og fiðlutónlist í flutningi ungra tónlistarmanna.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
//
VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri. VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best. Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.
Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.
Flytjendur
-
Vaka - VökufélagiðVökufélagið stuðlar að virku samtali og samstarfi milli einstaklinga, félaga og stofnana á sviði þjóðlista á Íslandi, þ.e. tónlistar, handverks, kveðskapar, flutnings o.s.frv.
-
Vaka þjóðlistahátíðFagnar lifandi hefðum með fjölbreyttum viðburðum fyrir alla fjölskylduna.