Lokatónleikar sumarnámskeiðs Íslenska Suzukisambandsins
Harpa | Flói, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Kort
sun. 09.08.2026 10:00
Velkomin á lokatónleika Sumarnámskeiðs Íslenska Suzukisambandsins!
Á tónleikunum koma fram um 175 nemendur á aldrinum 4–15 ára sem hafa tekið þátt í Sumarnámskeiðinu. Þau spila á blokkflautu, fiðlu, gítar, píanó, selló, víólu og þverflautu. Þar gefst einstakt tækifæri til að njóta árangurs þeirra, samspils og tónlistargleði.
Dagskrá
10:00 Píanónemendur
11:30 Þverflautu-, blokkflautu- og gítarnemendur
12:30 Selló- og víólunemendur
13:30 Kammertónleikar
14:15 Fiðlunemendur
Við bjóðum alla hjartanlega velkomið til að fagna þessum glæsilega hópi ungra tónlistarmanna og njóta fallegrar tónlistar saman. Aðgangur er ókeypis.
Hlökkum til að sjá ykkur á tónleikunum!