Krummafótur - Grasrótarsviðslistahátíð

Krummafótur - Grasrótarsviðslistahátíð

Út um allt Akureyri..., , Út um allt Akureyri... Kort

lau. 11.07.2026 00:00

Krummafótur - Grasrótarsviðslistahátíð

Grasrótarsviðslistahátíðin Krummafótur stígur á stokk í fyrsta sinn á Akureyri!

Krummafótur er ný grasrótarsviðslistahátíð á Akureyri sem haldin verður í fyrsta sinn dagana 10.-12. júlí 2026.
Markmið hátíðarinnar er að skapa vettvang fyrir ný sviðslistaverk, verk í vinnslu og sjálfstæða listsköpun, auk þess að efla tengsl sviðslistafólks á Norðurlandi og annars staðar af landinu. Hátíðin leggur sérstaka áherslu á að gefa ungu og upprennandi sviðslistafólki tækifæri og vettvang til að sýna verk sín. Það vantar sviðslistargrasrót á Akureyri og það er markmið hátíðarinnar að kveikja í henni.
Sýnd verða verk í Deiglunni, Hlöðunni, heimahúsum og á förnum vegi.
Skipuleggjendur hátíðarinnar eru sviðslistahópurinn Eimyrja.

Frekari upplýsingar má finna á facebook viðburðinum https://fb.me/e/4FfGnOt63 eða á instagram reikningnum @krummafoturhatid

Dagskrá:

10. júlí - Hamarstígur 6
20:00 -
Opnunarhátíð
Leiklestur á verkinu Samúðarkveðjur eftir Örnu Tryggva
 
11. júlí - Deiglan í Listagilinu
20:00 -
Ane Stautland - A Horse with no game
Performance
21:00 -
Ágústa Kort - Systkinasértrúarsöfnuður
Leiklestur
 
12. júlí - Hlaðan, Litla Garði
 
18-20 - Fríar pylsur með frírri kokteilsósu
17-20 - Gay lover theatre verður á vappi
 
17:00 -
Leikhús-töfrar - Oddur Klöts og Iðunn Gígja
Töfrasýning

18:00 -
Grenið - Ágústa Kort
Verk í vinnslu

19:00 -
HLÉ - Anna María Antonsdóttir
Örverk

20:00 -
Svanasöngur eftir Tsjékoff - Benóný Arnórsson, Arnór Benónýson og Jenný Lára Arnórsdóttir.

 

Hlökkum til að sjá ykkur!

-Eimyrja

 

Viðburðurinn er styrktur af Menningarsjóði Akureyrar. 

Flytjendur