Orkester Norden

Orkester Norden

Hof Menningarhús, Strandgata 12, 600 Akureyri Kort

lau. 25.07.2026 16:00

Orkester Norden

Orkester Norden er hvert ár skipuð 40-80 hæfileikaríkum ungmennum frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum sem eru sérstaklega valin til þátttöku

Orkester Norden er eitt af mörgum norrænum samstarfsverkefnum Lionshreyfingarinnar. Upphafið á sér rætur í Svíþjóð á árunum 1986–1987 þegar þáverandi alþjóðaforseti Lions fól sænskum Lionsfélaga, Lennart Fridén, að finna samnorrænt verkefni fyrir ungt fólk á aldrinum 15 -25 ára. Hljómsveitin æfir og heldur tónleika á Íslandi í fyrsta og eina skipti undir merkjum Lions á Íslandi.

Orkester Norden er hvert ár skipuð 40-80 hæfileikaríkum ungmennum frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum sem eru sérstaklega valin til þátttöku eftir strangt inntökuferli. Átta daga æfingarbúðir eru á Akureyri fyrir tónleikana undir stjórn þekktra norrænna leiðbeinenda. Þar á meðal Íslenskra, Björg Brjánsdóttir flautuleikari og tónskáld verður leiðbeinandi tréblásaranna og aðstoðarhljómsveitarstjórinn verður Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir, en hún lauk námi í hljómsveitarstjórn við Tónlistarháskólann í Osló nú í vor.

Listrænn stjórnandi er Ilkka Uurtimo – sellóleikari við Sinfóníuhljómsveitina í Lahti. Frekari upplýsingar um leiðbeinendur: https://www.orkesternorden.com/crew-2/

Aðalhljómsveitarstjóri Orkester Norden 2026 er Jan Söderblom sem er okkur að góðu kunnur en hann stjórnaði á Brahms og Saariaho tónleikum í Eldborg í janúar á þessu ári.

Þrír ungir íslenskir hljóðfæraleikarar leika með hljómsveitinni að þessu sinni. Hanna Kristín Stefánsdóttir violuleikari, Helga Björg Kjartansdóttir violuleikari og Karen Jóna Steinarsdóttir flautuleikari.

Á efnisskrá eru:

Franz Schubert: Symphony No. 8 in B minor ”Unfinished”

Igor Stravinsky: Pulcinella Suite

Carl Nielsen: Symfonisk Rhapsodi

Ludvig van Beethoven: Symphony No. 6 in F major ”Pastorale”

Það skiptir miklu máli fyrir þetta hæfileikaríka unga fólk að spila fyrir marga áheyrendur í sal. Tónleikar eru ekki eintal heldur samtal flytjenda og áheyrenda, svarið verður dauft bergmál í tómum sal. Við hvetjum því unnendur sinfonískrar tónlistar til að fjölmenna á tónleikana og allir eru velkomnir. Tónleikarnir í Hamraborg í Hofi eru 25. Júli 2026 og hefjast kl. 16:00

Það eru ekki seldir miðar í gegnum miðasölukerfi en við værum þakklát fyrir stuðning við verkefnið um verðgildi miða uppá kr.3.500

Styrktareikningur 0544 14 554053 kt.: 640572-0869 – Skýring: Orkester Norden.