Verið velkomin í ókeypis göngu í miðbæ Reykjavíkur fimmtudaginn 13. ágúst kl. 20.00.
Vigdís Hafliðadóttir vísnasöngvari og uppistandari leiðir fólk um ljóðheima skáldkvenna í miðbæ Reykjavíkur. Þessi bókmenntaganga er byggð í kringum sögu og raddir kvenna og var upphaflega búin til sem samvinnuverkefni Borgarbókasafnsins og Kvenréttindafélags Íslands í tilefni af kvennári.
Gangan er hugsuð sem sveigjanleg bókmenntaganga sem hægt er að framkvæma sem víðast. Hún byggir á því að velja nokkra lykilstaði sem flestir bæir eiga sér og tengja þá við texta kvenna sem kalla fram ákveðin sjónarhorn. Hérna er Vigdís búin að velja staðina og mun leiða okkur milli þeirra á sinn einstaka hátt.
Gangan endar á Borgarbókasafninu í Grófinni þar sem Vigdís mun taka lagið ásamt Önnu Grétu píanóleikara meðan göngufólk nýtur léttra veitinga.
Gangan hefst við Borgarbókasafnið í Grófinni, Tryggvagötu 15 og fer fram á íslensku. Gangan tekur um 1 og ½ klukkustund.
Gangan er hluti af viðburðaröðinni Kvöldgöngur en að henni standa Borgarbókasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur. Kvöldgöngurnar eru ókeypis og fara fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:00 – 21:30 yfir sumarmánuðina.
Athugið að göngurnar hefjast á mismunandi stöðum.
Fylgjast má með dagskránni á heimasíðum safnanna og á Facebook síðunni Kvöldgöngur: https://www.facebook.com/kvoldgongur og finna má heildardagskrá kvöldganga 2026 hér:
https://borgarbokasafn.is/kvoldgongur
Þátttaka er ókeypis en greiða þarf í ferjuna þegar göngurnar eru í Viðey.
Kvöldgöngur | Ljóðaganga með Vigdísi Hafliðadóttur
Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort
fim. 13.08.2026 20:00